Flottur árangur nemenda úr Fjallabyggð í Evrópukeppni í fjármálalæsi

Tinna Hjaltadóttir og Steingrímur Árni Jónsson nemendur í 10. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar voru fulltrúar Íslands í Evrópukeppni í fjármálalæsi sem fram fór í Brussel 23. maí síðastliðinn. Ísland hafnaði í öðru sæti af Norðurlöndunum á eftir Svíþjóð og voru í miðjunni af þeim 30 löndum sem tóku þátt. Sigurvegarar keppninnar í ár var lið Ítalíu.

Yfir 73.000 nemendur í um 3000 grunnskólum í 30 löndum Evrópu tóku þátt í undankeppnum heima fyrir og þar af hátt í 2.000 nemendur í 60 skólum hér á landi þar sem Grunnskóli Fjallabyggðar bar sigur úr bítum. Keppendur frá Íslandi voru því hlutfallslega mun fleiri en almennt innan Evrópu. Fulltrúar sigurskólanna í hverju komu síðan saman til Brussel í Evrópukeppnina.

Í keppninni svara þátttakendur spurningum um þekkingu þeirra almennt á persónulegum fjármálum eins og um sparnað og lán og vexti, áhrif verðbólgu á virði peninga og mikilvægi netöryggis.

Íslensku keppendurnir voru vel undirbúnir fyrir keppnina í Brussel enda með góðan kennara sér við hlið. Sigurlaug Ragna Guðnadóttir stærðfræðikennari í Grunnskóla Fjallabyggðar hvatti krakkana vel áfram, en þetta er í annað skiptið sem Grunnskóli Fjallabyggðar á fulltrúa í Evrópukeppninni, síðast var það árið 2022. Sigurlaug Ragna er afar stolt af öllum krökkunum í Fjallabyggð sem með samstilltri vinnu unnu undankeppnina hér á Íslandi í mars síðastliðnum.

„Þetta var rosalega skemmtileg og lærdómsrík ferð. Það er mikill heiður að fá að keppa fyrir Íslands hönd og sérstaklega á svona stóru sviði. Við viljum þakka bekkjarfélögum okkar í Fjallabyggð fyrir vinnuna í íslensku keppninni því annars hefðum við aldrei fengið þetta tækifæri í Brussel. Við teljum að allir krakkar eigi að læra um fjármál í skóla, því það er mikilvægt að læra hvernig fara á vel með peninga og að undirbúa sig fyrir framtíðarfjármálin“ segja þau Tinna og Steingrímur.

„Ég er afar stolt af krökkunum, þau komu vel undirbúin í keppnina, stóðu sig frábærlega og voru glæsilegir fulltrúar Íslands,“ segir Sigurlaug Ragna að lokum.

Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu standa að undankeppninni hér á landi með Fjármálaleikunum í gegnum Fjármálavit en það er fræðsluvettvangur um fjármálalæsi og er tilgangurinn að veita kennurum innblástur í kennslu um fjármál og stuðla að auknu vægi fjármálalæsi í grunn- og framhaldsskólum. Fjármálavit er einnig stutt af Landssamtökum lífeyrissjóða. Að sögn Kristínar Lúðvíksdóttur verkefnisstjóra Fjármálavits er markmiðið með keppni í fjármálalæsi fyrst og fremst að vekja athygli á mikilvægi þess hjá ungu fólki og hvetja kennara og skólastjórnendur áfram í kennslu í fjármálalæsi. „Það hefur verið gaman að fylgjast með þeim Tinnu og Steingrími í keppninni en þau voru glæsilegir fulltrúar Íslands í Brussel,“ segir Kristín.