Umsagnir

Síur
Sýnir
7
af
150
 niðurstöðum
August 31, 2026
No items found.

Tímabundin aðlögun á nýjum reglum um eiginfjárkröfur til lánastofnana vegna markaðsáhættu

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur nú lagt fram tillögu að nýrri reglugerð varðandi nýju reglurnar um markaðsáhættu. Reglugerðin felur ekki í sér frekari frestun á gildistöku nýju reglnanna, en mælt er fyrir um tímabundna aðlögun á útreikningi eiginfjárkrafna vegna markaðsáhættu þannig að eiginfjárkröfur verði áfram sambærilegar því sem myndi leiða af gildandi reglum til ársloka 2029. 

August 21, 2026
Umsagnir

Umsögn um áætlun um innleiðingu EES-gerða á fjármálamarkaði

SFF fagna því að birtur sé opinberlega listi yfir mál sem skilgreind hafa verið sem forgangsmál varðandi innleiðingar í íslenskan rétt á fjármálamarkaði. SFF telja birtingu slíks forgangslista jákvætt skref í átt að auknu gagnsæi og fyrirsjáanleika við innleiðingu.

August 19, 2026
Umsagnir

Þátttaka SFF í forsamráði um efnistök grænbókar um fjarskipti og netöryggi

Innviðaráðuneytið hefur hafið undirbúning að gerð draga að grænbók um fjarskipti og netöryggi. Ráðuneytið hefur óskað eftir sjónarmiðum varðandi viðfangsefni grænbókarinnar.

August 5, 2026
No items found.

Mikilvægt að efla varnir gegn skipulagðri brotastarfsemi

SFF fagna áformum um lagasetningu sem ætlað er að efla varnir gegn skipulagðri brotastarfsemi.

June 23, 2026
Fréttir

Þingmálaskrá og umsagnir SFF á yfirstöðnum þingvetri

SFF fylgjast með þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar og þeim lagafrumvörpum sem geta haft áhrif á starfsemi aðildarfélaga. Í því felst að yfirfara efni mála og koma sjónarmiðum SFF á framfæri með umsögnum í samráðsgátt, til Alþingis og Seðlabankans eða annarra stjórnvalda eftir atvikum.

June 16, 2026
Umsagnir

Athygli vakin á nauðsyn fjármálalæsis

Á undanförnum árum hafa SFF reglulega látið framkvæma kannanir á fjármálalæsi Íslendinga, en í apríl 2026 voru birtar niðurstöður úr könnun sem Gallup framkvæmdi fyrir samtökin fyrr á árinu. Niðurstöður könnunarinnar sýndu að flestir aðspurðra, eða rúmlega 81%, töldu fólk eiga að læra um peninga og fjármál í grunnskólum.

May 22, 2026
Umsagnir

Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um hluta- og einkahlutafélög

SFF, SA og fleiri hagsmunasamtök minntu á mikilvægi laga um hluta- og einkahlutafélög, enda grundvallar löggjöfin starfsemi þeirra félagaforma sem langstærstur hluti íslensks atvinnulífs reiðir sig á. Máli skiptir að ítarlegt samráð fari fram þegar gera á breytingar á slíkri grundvallarlöggjöf. Ítrekaðar voru ábendingar til stjórnvalda um að við innleiðingu regluverks ESB skuli ekki fara fram úr lágmarkskröfum Evrópureglna, gildissvið íslenskra reglna verði ekki víðtækara en þeirra evrópsku og að nýta skuli allar ívilnandi undanþágur.

May 8, 2026
Umsagnir

Umsögn SFF um frumvarp til laga um varfærniskröfur til verðbréfafyrirtækja

SFF hafa ítrekað bent á að sköpum skipti fyrir samkeppnishæfni íslensks fjármálamarkaðar að ekki sé gengið lengra en þörf er á við innleiðingu evrópsks regluverks á fjármálamarkaði. Vísað var til ábendinga sem SFF skiluðu til starfshóps gegn gullhúðun (blýhúðun) EES-reglna og sérstök athygli vakin á ábendingum um að hér á landi gildi strangari reglur um breytileg laun (kaupauka) en í helstu samanburðarlöndum okkar.

April 29, 2026
No items found.

SFF leggjast gegn áformum stjórnvalda um aukna skattheimtu

Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um aukna skattheimtu á fjármálageirann samkvæmt tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun 2027–2031.

Því miður fundust engar niðurstöður. Vinsamlegast reyndu að leita aftur með öðrum orðum.