Atvinnulífið gagnrýnir stjórnvöld vegna skorts á samráði við innleiðingu nýrrar reglugerðar um rýni erlendra fjárfestinga
Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) hafa ásamt sex öðrum samtökum í atvinnulífinu skilað sameiginlegri umsögn um drög að reglugerð um afmörkun viðkvæmra sviða samkvæmt lögum um rýni á fjárfestingum erlendra aðila.
Í umsögninni er gagnrýnt að stjórnvöld hafi ekki brugðist við ítrekuðum athugasemdum atvinnulífsins um óskýrt og of víðtækt gildissvið laganna. Samtökin hafi fjórum sinnum á árunum 2024–2026 varað við þessari hættu en telja að fyrirliggjandi reglugerðardrög auki á óvissu í stað þess að draga úr henni.
Skortur á samráði og leiðbeiningum
Samtökin gera sérstakar athugasemdir við að reglugerðardrögin nýti ekki undanþáguheimildir laganna og veiti engar leiðbeiningar um beitingu þeirra. Fyrirtæki geti því ekki vitað með vissu hvort starfsemi þeirra eða viðskipti falli undir reglurnar.
Lögin eiga að taka gildi 1. janúar 2027 en reglugerðardrögin voru ekki birt fyrr en 15. október. Samtökin telja undirbúningstímann ófullnægjandi og benda á að stjórnvöldum beri samkvæmt lögunum að útbúa aðgengilegt kynningarefni með hæfilegum fyrirvara fyrir gildistöku.
Kallað er eftir verulegri endurskoðun
Samtökin telja að reglugerðardrögin kunni að víkka gildissvið laganna umfram lagaheimild og skapa óþarfa óvissu í atvinnulífinu. Þau gera meðal annars athugasemdir við of víðtæka og óljósa afmörkun fjármálakerfisins, sem þegar lýtur umfangsmiklu opinberu eftirliti.
Jafnframt leggja þau til að fyrirtækjum verði tryggður að minnsta kosti tólf mánaða aðlögunartími frá því að fullnægjandi regluverk og leiðbeiningar liggja fyrir, eða sambærilegt fyrirkomulag.
SFF sendi jafnframt fyrir helgi sér umsögn sem fá finna hér.