Umsögn SFF um drög að frumvarpi til laga til breytinga á lögum um ökutækjatryggingar.
Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu hafa skilað umsögn um drög að frumvarpi til breytinga á lögum um ökutækjatryggingar í gegnum Samráðsgátt stjórnvalda. Markmiðið með lagabreytingunni er einkum að innleiða tilskipun (ESB) 2021/2118 (hér eftir „tilskipunin“) í landsrétt. Tilskipunin breytir tilskipun 2009/103/EB um ábyrgðartryggingu vegna notkunar vélknúinna ökutækja og um að fylgja því eftir að vátrygging vegna slíkrar ábyrgðar sé tekin.
Í umsögn samtakanna voru settar fram ábendingar varðandi tiltekin atriði sem talin voru þarfnast breytinga á frumvarpinu. Ábendingar samtakanna lutu t.a.m. að fyrirhuguðum breytingum á ákvæðum um gildissvið laganna, hugtaksskilgreiningum og jafnframt að nýjum ákvæðum sem komu til sögunnar með tilskipun (ESB) 2021/2118.
SFF á minntu á að við innleiðingu á regluverki skyldi hafa hliðsjón af smæð Íslands, forðast býhúðun (gullhúðun)og hafa að leiðarljósi að ganga ekki lengra en þörf er á, til að ná þeim markmiðum sem stefnt er að með innleiðingunni.