Umsögn um áformaðar breytingar á lögum um fasteignalán til neytenda
Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) hafa skilað umsögn um áformaðar breytingar á lögum um fasteignalán til neytenda, nr. 118/2016.
Á þessu stigi taka samtökin ekki efnislega afstöðu til áformanna: t.d. hvað varðar hámarkslánstíma, aðrar takmarkanir á veitingu verðtryggðra fasteignalána til neytenda, takmarkanir á lánum með sambærilega eiginleika eða önnur efnisleg atriði. SFF munu taka ákvörðun um hvort samtökin skili umsögn um frumvarpsdrögin þegar þau liggja fyrir.
Samtökin telja þó mikilvægt að koma ábendingum á framfæri sem snúa að áhrifamati fyrirhugaðrar lagasetningar. SFF geta ekki séð að fyrir liggi heildstætt mat á mögulegum áhrifum fyrirhugaðra breytinga. Að mati samtakanna er mikilvægt að slíkt mat fari fram áður en lengra er haldið og að þar verði meðal annars horft til áhrifa á lánamarkaðinn, stöðu ólíkra hópa lántakenda og aðgengi að fjármögnun. Í því samhengi telja SFF mikilvægt að haft verði samráð/samtal við lánveitendur og aðra hagaðila til að tryggja að ákvarðanir byggist á traustum upplýsingum og heildstæðri sýn á möguleg áhrif og afleiðingar.
Jafnframt leggja SFF áherslu á að við útfærslu fyrirhugaðra breytinga verði gætt að meðalhófi og tekið tillit til fjölbreyttra þarfa og aðstæðna lántakenda. Mikilvægt er að löggjöfin takmarki ekki um of möguleika einstaklinga til fjármögnunar eða svigrúm til þróunar fjölbreyttra lausna á lánamarkaði.
Þá minna samtökin á mikilvægi fyrirsjáanleika og stöðugleika í lagaumgjörð fjármálamarkaðarins. Tryggja þarf að markaðsaðilar fái nægilegt svigrúm til að laga starfsemi sína að nýjum kröfum og að breytingar séu innleiddar með skýrum hætti og hæfilegum fyrirvara. SFF benda á að fyrirhuguð gildistaka 1. janúar 2027 veitir lánveitendum mjög skamman tíma til að aðlaga skilmála, kerfi, upplýsingagjöf og verkferla. Samtökin hvetja til þess að þegar frumvarp lítur dagsins ljósi verði gefinn raunhæfur aðlögunartími í drögum að frumvarpi.