Drög að frumvarpi til laga um varfærniskröfur verðbréfafyrirtækja
SFF skrifuðu umsögn um drög að frumvarpi til laga um varfærniskröfur til verðbréfafyrirtækja. Með frumvarpinu er mælt fyrir um lagabreytingar vegna fyrirhugaðrar innleiðingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2019/2033 (IFR) og tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2019/2034 (IFD).
SFF benda í umsögn sinni á að rétt sé að skoða rýmkun á gildistökuákvæði frumvarpsins með þeim hætti að aðilum sem heyra undir löggjöfina gefist rými til að aðlaga sig að henni. Samtökin nýttu tækifærið og héldu á lofti sjónarmiðum um að ekki sé gengið lengra í innleiðingu Evrópulöggjafar á fjármálamarkaði hérlendis en nauðsynlegt er. Skiptir það sköpum þegar kemur að samkeppnishæfni íslensks fjármálamarkaðar. Nefndar eru m.a. ábendingar sem SFF skiluðu til starfshóps gegn gullhúðun (blýhúðun) EES-reglna. Eitt af þeim atriðum sem SFF bentu sérstaklega á er hversu strangar reglur gilda hér þegar kemur að reglum um breytileg laun (kaupauka). SFF benda á að of strangar reglur hafi áhrif á rekstrarskilyrði eftirlitsskyldra aðila (m.a. sveigjanleika í rekstri) og samkeppnishæfni þeirra. Samtökin telja mikilvægt að nýta tækifærið og benda á að þau telja tímabært að ákvæði í íslenskri löggjöf um breytileg starfskjör séu skoðuð þvert yfir tegundir fjármálafyrirtækja og samræmd við það sem tíðkast í ríkjunum sem við berum okkar saman við.
SFF minna að lokum á að rétt sé að afnema þær reglur sem ganga lengra en nauðsyn ber til, og að með einföldun löggjafar almennt, skapist meira rými fyrir því að innlend fjármálaþjónusta geti áfram stuðlað að bættum lífskjörum og aukinni framleiðni hér á landi.