Rýni á fjárfestingum erlendra aðila
SFF skrifuðu umsögn um frumvarp til laga um rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu. Í október á síðasta ári tóku SFF þátt í sameiginlegri umsögn Viðskiptaráðs, SA og annarra aðildarsamtaka SA þegar frumvarpið var birt í Samráðsgátt stjórnvalda. SFF sendu að auki inn sérstaka umsögn um frumvarpsdrögin. SFF höfðu sama hátt á þegar málið gekk til umsagnar hjá Alþingi. SFF sendi jafnframt viðbótarskýringar tengdar athugasemd þess efnis að láns- og fjármögnunarsamningar aðildarfélaga SFF verði ekki háðir rýni. Ítarlega umsögn samtakanna um þetta efni er að finna hér til hliðar.
SFF skilja mikilvægi þess að rýnilöggjöf kunni að vera mikilvæg m.a. í ljósi öryggis- og heimsmála. Það er þó afar mikilvægt að slíkt löggjöf sé skýr, einföld og gangi ekki lengra en nauðsynlegt er. SFF hafa bent á að fjármálamarkaður er nú þegar undir umfangsmikilli og strangri lagaumgjörð sem heyrir undir Seðlabanka Íslands að hafa eftirlit með. Það getur flækt umhverfi á fjármálamarkaði gífurlega ef ráðherra er ætlað að hafa eftirlit til hliðar og undir annarri löggjöf en almennt gildir á fjármálamarkaði. SFF benda sérstaklega á að mikilvægt sé að undanskilja rýni þegar kemur að láns- og fjármögnunarsamningum.
SFF taka jafnframt undir áhyggjur annarra umsagnaraðila þess efnis að tryggja þurfi skýrleika og að lögfesting íþyngjandi og óljóss regluverks sé ekki til þess fallin að ná tilætluðum markmiðum varðandi erlenda fjárfestingu. Slíkt gengur raunar gegn aðgerðum stjórnvalda og umræðu um mikilvægi erlendrar fjárfestingar fyrir íslenskt atvinnulíf. SFF hafa áhyggjur af því að lögfesting frumvarpsins í óbreyttri mynd kunni að draga úr samkeppnishæfni Íslands og hafa tilheyrandi neikvæð áhrif á nýsköpun, hagvöxt og umsvif í atvinnulífinu.