Umsögn um frumvarp til laga um réttindavernd fatlaðs fólks
Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu hafa skilað umsögn um frumvarp til laga um réttindavernd fatlaðs fólks. Samtökin fagna jákvæðum markmiðum fyrirhugaðrar lagasetningar.
Ábendingar samtakanna snúa að orðalagi ákvæða sem ætlað er að tryggja réttarvernd fatlaðra einstaklinga, meðal annars með samkomulagi um að persónulegur talsmaður geti í ákveðnum tilfellum komið fram fyrir hönd hins fatlaða einstaklings í viðskiptum eða samskiptum við fjármálafyrirtæki.
SFF ítreka jákvætt viðhorf gagnvart markmiðum fyrirhugaðrar lagasetningar en leggja áherslu á að ákvæði laganna séu orðuð með skýrum hætti, bæði til verndar rétti fatlaðra einstaklinga, persónulegra talsmanna og fjármálafyrirtækja. Þar að auki minna samtökin á að skýrt orðalag og ríkar kröfur til persónulegra talsmanna fatlaðra einstaklinga eru til þess fallin að draga úr hættunni á mistökum, misbrestum og svikum.