Umsögn um drög að frumvarpi til breytinga á lögum um fasteignalán til neytenda
SFF hafa skilað umsögn til fjármála- og efnahagsráðuneytisins um drög að frumvarpi til breytinga á lögum um fasteignalán til neytenda. Með frumvarpinu er meðal annars lagt til að hámarkslánstími verðtryggðra fasteignalána verði almennt 25 ár.
Samtökin taka ekki afstöðu til verðtryggingar sem slíkrar en telja nauðsynlegt að fyrir liggi heildstætt áhrifamat og fullnægjandi rökstuðningur fyrir 25 ára hámarkinu.
Mikilvægt er hins vegar að meta bæði ávinning og mögulegar neikvæðar afleiðingar takmörkunarinnar, bæði í núverandi efnahagsumhverfi og til framtíðar. Einkum er mikilvægt að meta möguleg áhrif á greiðslubyrði og aðgengi að fjármögnun. Sérstaklega þarf að horfa til þeirra lántaka sem hafa takmarkaðra svigrúm til að mæta hærri mánaðarlegri greiðslubyrði, svo sem tekjulægri einstaklinga, fyrstu kaupenda og ungra fjölskyldna.
Skýrari undanþágur og svigrúm til að bregðast við greiðsluerfiðleikum
SFF telja m.a. að skýra þurfi hvernig undanþágurnar í frumvarpsdrögunum eiga að virka í framkvæmd. Einnig benda SFF á að undanþágan vegna greiðsluerfiðleika nái bæði til skilmálabreytinga og endurfjármögnunar. Jafnframt telja SFF að skýra þurfi forsendur og framkvæmd almennu 10% undanþágunnar og benda á að rétt geti verið að úrræði vegna greiðsluerfiðleika standi lántökum til boða þótt það svigrúm sé fullnýtt.
Að lokum leggja SFF áherslu á að vandað verði til undirbúnings áður en ráðist er í breytingar á lögunum. Samtökin telja rétt að taka þau álitaefni sem rakin eru í umsögninni til nánari skoðunar og að metið sé hvernig fyrirhugaðar breytingar í heild myndu horfa við í framkvæmd. Jafnframt gæti verið heppilegt að boða til fundar með þeim aðilum sem breytingarnar varða, til að fara yfir álitaefnin, ræða áhrif breytinganna í framkvæmd og kanna hvort aðrar útfærslur geti betur þjónað markmiðum frumvarpsins. SFF eru reiðubúin að taka þátt í slíkri umræðu.