Tímabundin aðlögun á nýjum reglum um eiginfjárkröfur til lánastofnana vegna markaðsáhættu
Með reglugerð (ESB) 2024/1623 („CRR III“) samþykkti Evrópusambandið að breyta reglum um eigið fé vegna markaðsáhættu í þeim tilgangi að innleiða breytingar á alþjóðlegum viðmiðum um varfærniskröfur sem gerðar eru til banka, þ.e. svonefndan „Basel III-staðal“. Með reglugerðum (ESB) 2024/2795 og 2025/1496 samþykkti Evrópusambandið að fresta tilteknum breytingum CRR III, á kröfum um eigið fé vegna markaðsáhættu um eitt ár í senn.
Framkvæmdarstjórn ESB hefur nú lagt fram tillögu að framseldri reglugerð sem mælir fyrir um tímabundna aðlögun á útreikningi eiginfjárkrafna vegna markaðsáhættu, þannig að þær verði áfram sambærilegar gildandi reglum fram til ársloka 2029. Í áformaskjali sem birt var í samráðsgátt kemur fram að reiknað sé með að tillagan verði tekin upp í EES-samninginn sem fyrst og í framhaldinu innleidd í íslensk lög. Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu (hér eftir „SFF“ eða „samtökin“) þakka fyrir að hafa verið á meðal þeirra aðila sem boðin var þátttaka í umsagnarferli vegna málsins. SFF taka undir umfjöllun í áformaskjali um að innleiðing á gerðum sem byggja á tillögum framkvæmdarstjórnar ESB sé liður í góðri framkvæmd Íslands á EES-samningnum og að áfram megi tryggja aðgengi íslenskra fyrirtækja og neytenda að innri markaði EES-svæðisins. Enda hafa samtökin undirstrikað mikilvægi samspils tímanlegrar, skynsamlegrar og vandaðrar innleiðingar á evrópsku regluverki.
Gerðin er nú þegar til athugunar hjá EES/EFTA-ríkjunum og eru drög að ákvörðun sameiginlegu EES nefndarinnar í undirbúningi. Eftir að gerðin kemur til framkvæmdar í aðildarríkjum ESB er mikilvægt að hún komi til framkvæmdar hér á landi eins fljótt og verða má, til þess að gætt sé að samkeppnishæfni íslenskra lánastofnana. Misræmi milli framkvæmdardagsetninga og önnur efnisleg frávik geta haft neikvæð áhrif á stöðu íslenskra fyrirtækja á alþjóðavísu, líkt og oft á við um séríslenskar kröfur og álögur.
SFF lýstu því yfir að samtökin eru tilbúin til frekara samtals verði eftir því óskað, hvað varðar innleiðingu í íslenskan rétt.