Umsögn um þátttöku Íslands í samstarfsáætlunum ESB 2028–2034
Samtök atvinnulífsins, Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu, Samtök iðnaðarins, SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu, Samtök ferðaþjónustunnar, Samorka og Viðskiptaráð Íslands, héðan af „samtökin“, sendu frá sér sameiginlega umsögn í samráðsgátt stjórnvalda um tillögur að þátttöku Íslands í samstarfsáætlunum Evrópusambandsins fyrir tímabilið 2028–2034.
Í umsögninni er sérstök áhersla lögð á samráðsferlið sjálft og mikilvægi þess að atvinnulífið komi fyrr og markvissar að undirbúningi slíkra mála. Samtökin vísa til þess að kynning á þeim áætlunum sem nú eru til skoðunar hafi farið fram eftir að opið samráð var þegar hafið. Samtökin telja eðlilegt að aðkoma hagaðila sé virk á fyrri stigum, ekki síst þegar um er að ræða málaflokk sem hefur verulega þýðingu fyrir íslenska hagsmuni og möguleika fyrirtækja til þátttöku í alþjóðlegu samstarfi.
Samtökin telja að ávinningur geti falist í því að fulltrúar atvinnulífsins séu hluti af þeim hópi sem fái reglulega upplýsingar um framvindu mála og taki þátt í samræmingu eftir því sem við á. Í umsögninni kemur fram að með fastmótaðra samráði, sem að lágmarki myndi fela í sér samráðshóp með atvinnulífinu, megi betur tryggja að sjónarmið atvinnulífsins komi fram tímanlega, sérstaklega á meðan enn er svigrúm til að móta afstöðu Íslands og leggja mat á hvaða áætlanir best þjóna íslenskum hagsmunum.
Megináherslan í athugasemdum samtakanna beinist þó að því að vandað og fyrirsjáanlegt samráðsferli sé lykilforsenda þess að hægt verði að nýta þau tækifæri sem felast í komandi áætlunum með sem bestum hætti.