Umsögn um áætlun um innleiðingu EES-gerða á fjármálamarkaði
SFF fagna því að birtur sé opinberlega listi yfir mál sem skilgreind hafa verið sem forgangsmál varðandi innleiðingar í íslenskan rétt á fjármálamarkaði. SFF telja birtingu slíks forgangslista jákvætt skref í átt að auknu gagnsæi og fyrirsjáanleika við innleiðingu. Með því að gera hagaðilum kleift að sjá með skýrum hætti hvaða mál eru fram undan og hvernig þeim er forgangsraðað skapast betri forsendur fyrir tímanlegum undirbúningi við innleiðingu og vönduðu samráði. Samtökin fagna því framtaki ráðuneytisins að hafa birt slíka áætlun undanfarin ár og telja mikilvægt að þeirri framkvæmd verði haldið áfram. SFF telja fylgiskjal forgangslistans jafnframt upplýsandi og lýsa ánægju með þá vinnu sem þar liggur að baki.
SFF benda á að mikilvægt sé að innlend fjármálafyrirtæki búi við þannig starfsskilyrði að fyrirtækin séu samkeppnishæf í alþjóðlegu umhverfi. Bent hefur verið ítrekað á að fjármálafyrirtæki hérlendis búi við ýmsar íþyngjandi kröfur og álögur sem eru töluvert umfram það sem gerist í þeim löndum sem við berum okkur saman við. Telja SFF mikilvægt að þau sjónarmið séu ávallt höfð í huga þegar evrópskt regluverk er innleitt hérlendis, ekki sé gengið lengra en þörf krefur og að samkeppnishæfni Íslends sé í forgrunni.
Samtökin benda á að mikilvægt sé að huga að vandaðri og tímanlegri innleiðingu EES-tilskipana og reglugerða er lúta að fjármálastarfsemi. Innleiðingarhalli er almennt óheppilegur og mikilvægt að á honum séu haldbærar skýringar líkt og ráðuneytið setur fram í fylgiskjali með áætluninni. SFF telja að í þessu samhengi sé mikilvægt að setja í forgang að vinna hratt og vel að þeim reglum sem fela í sér einföldun regluverks á fjármálamarkaði. Í ljósi framangreinds benda SFF stjórnvöldum á að beita sér fyrir því að EU Listing Act færist úr 2. forgangi í 1. forgang eins fljótt og mögulegt er og að engar frekari tafir verði á innleiðingu hvað þá löggjöf varðar.
- Til nánari skýringar felast umfangsmiklar breytingar í skráningarpakka ESB (EU Listing Act), einkum á lýsingar- og markaðssvikaregluverki (MAR) og er því nauðsynlegt að innleiðing pakkans í íslenskan rétt verði sett í forgang. Breytingarnar fela m.a. í sér verulega einföldun á upplýsingagjöf útgefenda, aukinn sveigjanleika við meðferð tiltekinna upplýsinga og fleiri þætti sem ættu að hafa jákvæð áhrif á starfsemi fjármálafyrirtækja og skilvirkni verðbréfamarkaða.
- Sú staða að reglurnar hafi þegar verið einfaldaðar annars staðar skapar skekkju hvað varðar samkeppnishæfni hérlendra aðila samanborið við þau lönd sem búa nú við einfaldari reglur. Með hliðsjón af framangreindu er mikilvægt að stjórnvöld beiti sér fyrir því að upptöku Listing Act í EES-samninginn og innleiðingu í íslenskan rétt verði flýtt eins og mögulegt er. SFF leggja því til að innleiðingu skráningarpakkans verði skipað eins framarlega í forgangsröð innleiðingaráætlunarinnar og mögulegt er svo stuðla megi að samkeppnishæfni íslensks fjármálamarkaðar.
Að lokum leggja SFF áfram áherslu á gott og uppbyggilegt samstarf við ráðuneytið þegar kemur að innleiðingum á þessu sviði. Einnig leggja SFF áherslu á að hagaðilar verði upplýstir tímanlega um fyrirsjáanlegar breytingar á löggjöf og þegar von er á nýrri löggjöf, þannig að fullnægjandi svigrúm gefist til aðlögunar.