Mikilvægt að efla varnir gegn skipulagðri brotastarfsemi
SFF hafa skilað umsögn um almenn áform stjórnvalda um aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi. Samtökin taka áformunum fagnandi og leggja áherslu á að löggjöf, rannsóknarheimildir og viðbúnaður lögreglu og ákæruvalds þróist í takt við síbreytilegar og sífellt tæknivæddari aðferðir í skipulagðri brotastarfsemi.
SFF fagna áformum um lagasetningu sem ætlað er að efla varnir gegn skipulagðri brotastarfsemi. Samtökin hafa á síðustu misserum vakið athygli á vaxandi umfangi og alvarleika skipulagðrar brotastarfsemi og ekki síst þeirri ógn sem hún getur falið í sér fyrir fjármálakerfið, vátryggingastarfsemi, atvinnulífið og almenning.
Öflugur og traustur fjármálaþjónustumarkaður er ein af grunnstoðum íslensks samfélags og gegnir lykilhlutverki í daglegu lífi almennings og starfsemi atvinnulífsins. Það er því sameiginlegt hagsmunamál samfélagsins að verja fjármálakerfið gegn misnotkun skipulagðra brotahópa og tryggja að þeir aðilar sem standa vörð um öryggi þess hafi fullnægjandi heimildir, þekkingu og úrræði til að bregðast hratt og markvisst við.
Aðildarfyrirtæki SFF búa yfir víðtækri þekkingu og reynslu sem getur nýst við frekari mótun og framkvæmd þeirra aðgerða sem áformin fela í sér. Samtökin eru reiðubúin til virks og uppbyggilegs samtals við stjórnvöld og löggæsluyfirvöld og til að leggja sitt af mörkum við að tryggja að þær leiðir sem valdar verða séu markvissar, framkvæmanlegar og til þess fallnar að skila raunverulegum árangri í baráttunni gegn skipulagðri brotastarfsemi.