SFF vilja að fjármálalæsi fái aukið vægi í menntastefnu
Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) hafa skilað umsögn til mennta- og barnamálaráðuneytisins um drög að þriðju aðgerðaáætlun menntastefnu til ársins 2030. Áætlunin tekur til áranna 2027–2030 og hefur það meginmarkmið að hvert barn nái betri árangri í námi og búi við meiri farsæld.
SFF taka undir markmið áætlunarinnar og fagna áherslu á bættan lesskilning og stærðfræðikunnáttu nemenda. Samtökin gera þó athugasemd við að fjármálalæsi sé hvergi nefnt í drögunum, enda er það mikilvægur þáttur í undirbúningi barna og ungmenna fyrir þátttöku í atvinnulífi og samfélagi. Samtökin leggja ríka áherslu á að úr þessu verði bætt.
Afgerandi stuðningur við fjármálafræðslu
Í umsögninni vísa SFF til niðurstaðna könnunar sem Gallup framkvæmdi fyrir samtökin fyrr á árinu. Samkvæmt henni telja rúmlega 81% svarenda að fólk eigi að læra um peninga og fjármál í grunnskólum, en aðeins 12,3% segjast sjálf hafa fengið slíka fræðslu í grunnskóla. Þá telja 91,7% þeirra sem tóku afstöðu miklu máli skipta að fjármálalæsi verði gert að skyldufagi.
Samtökin hafa um árabil unnið að eflingu fjármálalæsis, meðal annars í gegnum fræðsluvettvanginn Fjármálavit, sem stofnaður var árið 2014. Frá árinu 2017 hefur vettvangurinn verið starfræktur með stuðningi Landssamtaka lífeyrissjóða. Í gegnum Fjármálavit hefur meðal annars verið dreift um 24.000 kennslubókum endurgjaldslaust til skóla, auk þess sem boðið hefur verið upp á námskeið fyrir kennara og fjölbreytt stafrænt námsefni.
Landsstefna um fjármálalæsi
SFF leggja til að fjármálalæsi verði sérstaklega tilgreint við mótun nýrrar menntastefnu, sem fyrirhugað er að leggja fram á Alþingi haustið 2028. Samtökin telja jafnframt mikilvægt að mótuð verði landsstefna um fjármálalæsi, með skýrum markmiðum, ábyrgð á framkvæmd, tímasettum aðgerðum og reglulegu mati á árangri.
Samtökin benda á að hægt sé að efla fjármálalæsi innan núverandi áhersluatriða aðgerðaáætlunarinnar, meðal annars með aukinni fræðslu fyrir kennara og aðgengi að kennsluefni í fyrirhugaðri námsgagnaveitu.
Þá telja SFF að samræma þurfi kennslu í fjármálalæsi milli skóla og skilgreina betur hvaða hæfni nemendur eigi að öðlast á hverju aldursstigi. Fjármálalæsi eigi þegar stoð í gildandi aðalnámskrá grunnskóla, en skortur sé á samræmdum kennsluháttum, viðmiðum og mælingum.
Mikilvægt að mæla árangur
SFF vekja einnig athygli á því að mælikvarða á fjármálalæsi vanti í fyrirliggjandi aðgerðaáætlun. Samtökin leggja til að ráðuneytið kanni möguleika á þátttöku Íslands í fjármálalæsismati PISA árið 2029, í samráði við OECD. Verði það ekki mögulegt mætti skoða að koma á sambærilegu mati hér á landi.
Að mati samtakanna er nauðsynlegt að mæla færni nemenda svo hægt sé að setja skýr markmið og meta árangur fjármálafræðslu.
SFF ítreka að lokum að fjármálalæsi er mikilvægur þáttur í að tryggja jöfn tækifæri barna, óháð skóla, búsetu eða félagslegum bakgrunni. Markmiðið ætti að vera að ekkert barn fari út í lífið án grundvallarþekkingar á fjármálum og að allir nemendur öðlist þá hæfni sem þarf til að taka upplýstar ákvarðanir um eigin fjárhag.