Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um hluta- og einkahlutafélög
Samtök atvinnulífsins, Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu, Samtök verslunar- og þjónustu, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samorka, Samtök iðnaðarins, Samtök ferðaþjónustunnar og Viðskiptaráð Íslands (hér eftir sameiginlega nefnd „samtökin“) sendu sameiginlega umsögn um frumvarp til breytinga á lögum um hluta- og einkahlutafélög til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis.
Samtökin skiluðu jafnframt sameiginlegri umsögn um drög frumvarpsins í Samráðsgátt stjórnvalda, en með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um hluta- og einkahlutafélög til innleiðingar á ákvæðum tilskipunar (ESB) 2017/828, SRD II og framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1212. Að loknu samráði voru gerðar þónokkrar breytingar á frumvarpinu og við gerð þeirra var tekið tillit til athugasemda samtakanna upp að vissu marki.
Samtökin ítrekuðu athugasemdir sem gerðar voru við 1. gr. frumvarpsins í fyrri umsögn, en þær lutu m.a. að skilgreiningum hugtaka og ákvæðum um auðkenningu hluthafa, orðalagi ákvæða, ákvæðum um mikilvæg viðskipti og þátttökustefnu, svo dæmi séu nefnd. Þá ítrekuðu samtökin ábendingar til stjórnvalda varðandi þau atriði sem mikilvægt er að leggja áherslu á við innleiðingu evrópsks regluverks í íslenskan rétt, t.a.m. að ekki verði gengið lengra en þörf krefur við innleiðingu íþyngjandi krafna, að allar ívilnandi undanþágur verði nýttar og að allar sambærilegar kröfur sem fyrir eru í gildandi rétti verði afnumdar.
Samtökunum þykir skref hafa verið stigið í rétta átt með þeim breytingum sem gerðar voru á ákvæðum 2. gr. frumvarpsins, en nú er lagt til að fortakslaust bann við veitingu kauprétta til stjórnarmanna verði afnumið. Þrátt fyrir það var sjónarmiðum komið á framfæri varðandi útfærslu ákvæða er lúta að atkvæðagreiðslu hluthafafundar um starfskjarastefnu. Annars vegar fundu samtökin að því að frumvarpið kvæði á um að slík atkvæðagreiðsla skyldi vera bindandi, þrátt fyrir að tilskipunin heimilaði ráðgefandi atkvæðagreiðslu og hins vegar að því að ákvæði 2. gr. væru hvorki til þess fallin að auka skýrleika né fyrirsjáanleika.
Samtökin fagna því að tekið hafi verið tillit til athugasemdar um gildistökuákvæði frumvarpsins, en nú er lagt til að ákvæði 1., 3. og 4. gr. komi til framkvæmdar 1. janúar 2027 og ákvæði 2. gr. þann 1. maí 2027.