SFF leggjast gegn auknum bankaskatti - Umsögn um frumvarp til fjárlaga 2027
Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu hafa sent umsögn um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 til fjárlaganefndar Alþingis. Umsögnin er samhljóða umsögn um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2027 sem samtökin hafa þegar sent efnahags- og viðskiptanefnd þingsins. Samtökin telja að öll sömu sjónarmið eigi erindi við fjárlaganefnd.
Í frumvarpinu er lögð til hækkun gjaldhlutfalls sérstaks skatts á fjármálafyrirtæki samkvæmt lögum nr. 155/2010. Nái breytingin fram að ganga hækkar hlutfallið um rúm 75%, úr 0,145% í 0,254%.
Í umsögninni er meðal annars vísað til ítrekaðra varnaðarorða Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, Seðlabanka Evrópu, Seðlabanka Íslands og fleiri um slíka skattheimtu. Þar að auki hefur fjöldi annarra aðila nú þegar sent umsagnir til Alþingis þar sem tekið er í sama streng og SFF gera í umsögn sinni og lagst er gegn áformum um hækkun hins sértæka skatts.
Samtökin telja einkar mikilvægt að ráðist verði í mat á áhrifum breytingarinnar á hagkerfið, atvinnulífið, samkeppnishæfni Íslands og almenning í landinu.
SFF leggja áherslu á að þau eru tilbúin til þess að koma fyrir fjárlaganefnd og gera grein fyrir umsögn sinni og þeim sjónarmiðum sem nauðsynlegt er að koma á framfæri.
Hér má finna fylgigögn með umsögn SFF til efnhags- og viðskiptanefndar.