Umsögn um drög að reglugerð um afmörkun viðkvæmra sviða samkvæmt lögum um rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu
SFF hafa skilað umsögn til atvinnuvegaráðuneytisins um drög að reglugerð um afmörkun viðkvæmra sviða samkvæmt lögum nr. 84/2026 um rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu.
Samtökin gagnrýna að ekki hafi verið haft nægilegt samráð við atvinnulífið við undirbúning reglugerðarinnar og telja nauðsynlegt að samráð verði haft við hlutaðeigandi hagsmunasamtök við endurskoðun reglugerðardraganna. Þá skorti leiðbeiningar um hvaða starfsemi og samningar falli undir löggjöfina og hvaða undanþágur eigi að gilda.
SFF gera sérstakar athugasemdir við tilraun til að skilgreina fjármálakerfi í reglugerðardrögunum. Telja samtökin skilgreininguna of víðtæka, hvernig sem á hana er litið og jafnframt a verulega óljóst sé hvaða aðilar eigi að falla þar undir og hvenær.
Að mati SFF verður reglugerð ekki beitt til að víkka gildissvið laganna umfram þau mörk sem Alþingi hefur ákveðið. Samtökin leggja t.a.m. áherslu á að hefðbundin bankastarfsemi skuli ekki falla undir löggjöfina og að skýrt verði hvaða tilteknu innviðir fjármálakerfisins teljist viðkvæmir.
SFF minna jafnframt á að fjármálafyrirtæki starfi nú þegar innan strangs regluverks og undir víðtæku eftirliti Seðlabanka Íslands. Of víðtæk útfærsla nýju reglnanna geti því aukið flækjustig, tafið viðskipti og dregið úr fyrirsjáanleika á íslenskum fjármálamarkaði.
Skýrar leiðbeiningar þarf fyrir gildistöku
Lögin eiga almennt að taka gildi 1. janúar 2027. SFF telja brýnt að skýr afmörkun gildissviðs, undanþágur og fullnægjandi leiðbeiningar liggi fyrir með hæfilegum fyrirvara fyrir gildistöku.
SFF munu einnig koma að gerð umsagnar SA og annarra hagsmunasamtaka í atvinnulífinu um málið.