Það er til mikils að vinna að innleiðing frá T+2 yfir í T+1 gangi hnökralaust fyrir sig hérlendis
Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu skrifuðu umsögn um drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafrænna eignaskráningu fjármálagerninga (CSDR Refit og T+1), sem fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur kynnt til samráðs.
Áformað er að innleiða tvær Evrópugerðir í landsrétt er lúta að breytingum á reglugerð (ESB) nr. 909/2014 (hér eftir „CSDR“) sem innleidd var hér á landi með lögum nr. 7/2020, um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignarskráningu fjármálagerninga.
Vísað er til umsagnar sem SFF skiluðu í gegnum Samráðsgátt þann 17. desember sl., er laut að áformum um innleiðingu gerðanna, einkum að því er varðar styttingu uppgjörstíma viðskipta með fjármálagerninga (T+1).
Í umsögn sinni bentu samtökin m.a. á að breytingin krefðist aðlögunar ferla og uppfærslu fjármálainnviða, auk breytinga í tölvukerfum og ferlum á markaði. SFF ítreka að leggja skuli áherslu á vandaða innleiðingu evrópsks regluverks og telja samráð stjórnvalda um lagafrumvörp jákvætt. SFF fagna þeim sjónarmiðum sem fram hafa komið við vinnslu málsins um að breytingin krefjist tímanlegs undirbúnings og samhæfingar þvert á markaðinn. Í fyrrnefndri umsögn um áformin vöktu SFF máls á vinnuhópi sem stofnaður hefur verið innan Seðlabanka Íslands til að undirbúa breytingar frá T+2 yfir í T+1 og innra samtali milli ráðuneyta. SFF vísa til þeirrar umfjöllunar í umsögn sinni og leggja áfram ríka áherslu á að hagaðilar á fjármálmarkaði fái að koma að áðurnefndum undirbúningi og samhæfingu við fyrsta tækifæri. Aðkoma haghafa í innleiðingarvinnunni stuðlar án vafa að árangursríkri og vandaðri innleiðingu. Það er til mikils að vinna að innleiðing frá T+2 yfir í T+1 gangi hnökralaust fyrir sig hérlendis. Samtökin áskilja sér rétt til þess að koma að frekari ábendingum eða athugasemdum síðar.