Jón Guðni nýr formaður SFF

Á aðalfundi Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) sem fór fram í síðustu viku var Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, kjörinn formaður stjórnar samtakanna. „Ég er afar spenntur fyrir því að vinna með starfsfólki SFF að enn frekar framgangi fjármálaþjónustu á Íslandi," segir Jón Guðni.
Jón Guðni tekur við hlutverkinu af Benedikt Gíslasyni, bankastjóra Arion banka, sem hefur gegnt formennsku undanfarin tvö ár en Benedikt mun áfram sitja í stjórn SFF.
Þá var Þorleifur Stefán Björnsson, framkvæmdastjóri T-plús, einnig kjörinn nýr inn í stjórnina en aðrir stjórnarmenn eru Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS, og Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri Lánasjóðs sveitarfélaganna.
Lilja B. Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, og Stefán Þór Bjarnason, framkvæmdastjóri Arctica Finance, sitja í varastjórn.
Í kjölfarið aðalfundarins fór SFF dagurinn fram undir yfirskriftinni Breyttur heimur og þá kom einnig út sérblað með Viðskiptablaðinu tileinkað SFF deginum 2025.