Fréttabréf SFF: Þingveturinn gerður upp og aukið við Norðurlandamet í skattheimtu
Farið er um víðan völl í nýútkomnu fréttabréfi SFF. Þar ermeðal annars fjallað um fund sem samtökin héldu í júní, í tilefni af boðaðrihækkun sértækra skatta á banka hér á landi. Skattarnir eru nú þegar hærri en ísamanburðarlöndum Íslands, þar með talið á Norðurlöndunum. Fundurinn var velsóttur og á fimmta þúsund fylgdust með honum í beinu streymi.
Þar er einnig að finna samantekt yfir umsagnir sem SFFskiluðu á liðnum þingvetri. SFF skilaði um 30 umsögnum um ýmis mál sem snertastarfsemi aðildarfélaga samtakanna með einum eða öðrum hætti.
Þá er sagt frá viðburði sem SFF héldu ásamt Íslandsstofu, ísamstarfi við Reykjavík Fintech. Þar var fjallað um nýja yfirferð Northstack umstöðu og framtíð fjártækni á Íslandi. Eins er sagt frá frábærum árangri Íslandsí Evrópukeppninni í fjármálalæsi, þar sem tveir glæsilegir fulltrúar úr 10.bekk Garðaskóla kepptu, og enduðu efst Norðurlandanna. Þá er sagt frá því semmikilvægt er að hafa í huga þegar fólk verður fyrir netsvikum, en þar skiptaskjót viðbrögð höfuðmáli.