Sérblað Viðskiptablaðsins um SFF daginn 2026

Viðskiptablaðið gaf út veglegt sérblað í tilefni SFF dagsins 2026 þann 15. apríl síðastliðinn. Dagurinn í ár fór fram undir yfirskriftinni Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin. Þar var litið til þess hvernig fjármálakerfið getur áfram ýtt undir bætt lífskjör og aukinn hagvöxt hér á landi, en einnig hraðrar framþróunar á sviði fjártækni og gervigreindar.

Meðal umfjöllunarefnis í blaðinu:

• Viðtal við Heiðrúnu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra SFF. Þar ræðir hún meðal annars um fyrirhugaða skattahækkun á fyrirtæki í fjármálageiranum, sem þegar greiða fleiri og hærri sértæka skatta en sambærileg fyrirtæki í sambanburðarlöndum Íslands.

• Grein eftir Jón Guðna Ómarsson, bankastjóra Íslandsbanka og formann SFF, um fjártækni sem raunhæfa leið til aukins hagvaxtar hér á landi.

• Viðtal við Ernu Björnsdóttur, fagstjóra hugvits og tækni hjá Íslandsstofu, um eftirtektarverðan árangur íslenskra fjártæknifyrirtækja á erlendri grundu.

• Umfjöllun um sigurvegara Fjármálaleikanna 2026, landskeppni grunnskólanna í fjármálalæsi, sem fræðsluvettvangurinn Fjármálavit stendur fyrir.

• Viðtal við Kristinn Árna Lár Hróbjartsson og Eszter Czibor, bæði hjá Northstack, um skýrslu sem þau unnu fyrir SFF og Íslandsstofu um rekstrarumhverfi íslenskra fjártæknifyrirtækja, stöðu þeirra og tækifæri.

• Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, skrifar um hlutverk hins opinbera í því að stuðla að skilvirkri miðlun sparnaðar og mikilvægi öflugrar fjármálaþjónustu.

• Þórleifur Stefán Björnsson, framkvæmdastjóri T Plús og stjórnarmaður í stjórn SFF, skrifar um mikilvægi bakvinnslu í starfsemi fjármálafyrirtækja.

• Íris Björk Hreinsdóttir, yfirlögfræðingur SFF, skrifar um hætturnar sem fylgja of umfangsmiklu og íþyngjandi regluverki og þau neikvæðu áhrif sem slíkt getur haft á samkeppnishæfni Íslands.

Hér má nálgast blaðið.

Nánar um SFF daginn 2026 og upptökur frá ráðstefnunni.