Enn hærri skattar, fyrir hvern?
%20(900%20x%20900%20px).jpg)
Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu standa að fundi um boðaða skattahækkun stjórnvalda á fyrirtæki í fjármálageiranum undir yfirskriftinni, „Enn hærri skattar, fyrir hvern?“. Fundurinn fer fram þriðjudaginn 9. júní í Veröld – húsi Vigdísar, kl. 13:00-14:30.
Skattahækkun á fjármálafyrirtæki var boðuð í fjármálaáætlun fjármála- og efnahagsráðherra fyrir árin 2027 til 2031. Ekki hefur verið upplýst um eðli hennar eða umfang með tilheyrandi óvissu og ófyrirsjáanleika.
Á fundinum mun Dr. Gunnar Haraldsson, stofnandi Intellecon, kynna niðurstöður skýrslu um rekstrar- og skattaumhverfi fjármálaþjónustu á Íslandi og velta upp mögulegum áhrif af boðaðri skattahækkun.
Auk þess munu Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka og Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Seðlabankans, halda erindi á fundinum.
Aðrir þátttakendur á fundinum verða:
Arna Lára Jónsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis.
Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra og varaformaður Viðreisnar.
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins.
Hreiðar Bjarnason, framkvæmdastjóri fjármála hjá Landsbankanum.
Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka.
Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins.
Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka iðnaðarins, forstjóri Hornsteins og fyrrverandi félags- og jafnréttismálaráðherra.
Fundarstjóri verður Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF og þá munu Ingvar Haraldsson, greininga- og samskiptastjóri SFF, og Íris Björk Hreinsdóttir, yfirlögfræðingur SFF, stýra pallborðsumræðum.
Fundurinn fer fram í Auðarsal í Veröld – húsi Vigdísar, og hefst klukkan 13:00. Fundurinn er opinn öllum en skráning fer fram hér að neðan.