Hærri skattar, töpuð tækifæri?

Hærri skattar, töpuð tækifæri? er yfirskrift viðburðar sem Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu stóðu fyrir þann 14. september.  

Hvar stendur íslenskt fjármögnunarumhverfi og í hvaða átt stefnir það? Hvaða áhrif hafa skattar, regluverk og aðgerðir stjórnvalda í þeim efnum? Hvar liggja framtíðartækifærin til að fjármagna íslenskt atvinnulíf í átt til bættra lífskjara? Hversu mikil áhrif hefur fyrirsjáanleiki í skattlagningu og reglusetningu á samkeppnishæfni Íslands? Þessum spurningum og mörgum fleiri var velt upp á ráðstefnunni auk þess að fjallað var um skatta á íslenska banka í alþjóðlegum samanburði.

Þátttakendur á fundinum voru:

• Arna Lára Jónsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður efnahags- og viðskiptanefndar
• Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra.
• Ellert Arnarson, fjármálastjóri Amaroq Minerals
• Dr. Gunnar Haraldsson, hagfræðingur og stofnandi Intellecon
• Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins
• Iða Brá Benediktsdóttir, aðstoðarbankastjóri Arion banka 
• Ingvar Haraldsson, greininga- og samskiptastjóri SFF
• Íris Björk Hreinsdóttir, yfirlögfræðingur SFF
• Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka
• Lars Christensen, hagfræðingur og framkvæmdastjóri Ipace
• Lev Ratnovski, hagfræðingur hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum
• Reynir Stefán Gylfason, endurskoðandi og meðeigandi hjá KPMG
• Sigríður Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins
• Tanya Zharov, lögfræðingur og stjórnarmaður í atvinnulífinu

Fundarstjóri var Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF.

Upptöku frá fundinum má sjá hér ofar í viðburðinum.