Kraftmeiri sparnaður í seilingarfjarlægð?

Kraftmeiri sparnaður í seilingarfjarlægð? er yfirskrift ráðstefnu sem Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) og Nasdaq Iceland stóðu að þann 10. febrúar síðastliðinn.

Fjallað var um möguleikann á að innleiða fjárfestingarreikninga fyrir einstaklinga hér á landi, líkt og gefið hefur góða raun annars staðar, t.d. í Svíþjóð. Markus Mild, sérfræðingur hjá Nasdaq, sagði frá reynslu Svía af innleiðingu slíkra reikninga, og ávinningnum sem hlaust af. 

Hvernig þyrftu Íslendingar að bera sig að við innleiðingu slíkra reikninga? Hverju geta þeir skilað okkur og hverju þarf að breyta þannig að hlutabréf verði aðlaðandi í augum almennings sem ávöxtunarleið? Gætu fjárfestingarreikningar verið lykillinn að því? Leitast var við að svara þessum spurningum, og fleirum, á ráðstefnunni.

Dagskrá ráðstefnunnar var eftirfarandi:

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra – Ávarp ráðherra

Markus Mild, sérfræðingur hjá Nasdaq - The Swedish Investment Savings Account and the financial ecosystem

Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika - Er sparnaðurinn á bekknum?

Jóhann Möller, framkvæmdastjóri markaða hjá Arion banka - Óskalistinn

Guðbjörg Þorsteinsdóttir, lögmaður og meðeigandi á Deloitte Legal - Hvaða áhrif hafa skattar á fjárfestingar og sparnað einstaklinga?

Kristín Hildur Ragnarsdóttir, frá Fortuna Invest - Fjárfestingar í augnhæð

Kristrún Tinna Gunnarsdóttir, ráðgjafi - Gerum hollar ákvarðanir auðveldari

Fundarstjóri var Magnús Harðarson, forstjóri Nasdaq Iceland. Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka og formaður SFF, setti fundinn.

Hér má finna frekari samantekt og upptökur frá fundinum.