Fréttabréf SFF: Fjármögnun atvinnulífsins, hreyfanleiki neytenda og nýtt svikapróf

Það er af nógu að taka í nýju fréttabréfi SFF, þar sem farið er yfir helstu verkefni samtakanna upp á síðkastið.
- Þar er meðal annars fjallað um nýja samantekt samtakanna sem leiðir í ljós að þrír stærstu viðskiptabankar landsins greiddu samtals 35,7 milljarða króna í tekjuskatt og viðbótartekjuskatt vegna ársins 2025. Það jafngildir um 18% af samanlögðum tekjuskatti og viðbótartekjuskatti allra fyrirtækja hér á landi, þótt einungis um 1,7% starfsfólks á almennum vinnumarkaði starfi hjá bönkunum.
- Þá er fjallað um nýja herferð sem SFF hafa ýtt úr vör til þess að vara fólk við netsvikum, sem aukast verulega í kringum netsöludaga í nóvember og í aðdraganda jóla. Til þess að sjá hvar fólk stendur getur það tekið nýtt svikapróf SFF, sem líkir eftir algengum aðstæðum sem netsvikarar búa til.
- Greint er frá áherslum samtakanna þegar kemur að baráttunni gegn skipulagðri brotastarfsemi, en breyttir tímar í þeim efnum kalla á nýja hugsun og sterkari viðbrögð.
- Sagt er frá nýrri könnun Gallup sem sýnir fram á hreyfanleika neytenda á fjármálamarkaði, kröfuna um aukna áherslu á fjármálalæsi í menntastefnu stjórnvalda .
- Fjallað er um fjölda umsagna sem samtökin hafa skilað til stjórnvalda að undanförnu vegna fyrirhugaðrar laga- eða reglusetningar.
- Ber þar hæst að nefna umsögn vegna fyrirhugaðrar hækkunar sértæks skatts á skuldir banka. Samtökin hafa ítrekað, í ræðu og riti, bent á að heildarmat á áhrifum fyrirhugaðrar hækkunar verði að fara fram áður en ráðist er í breytingarnar. Íslenskir bankar búa þegar við um fimmfalt hærri sértæka skattbyrði en að meðaltali í Vestur-Evrópu. Þá vara samtökin við því að auknar álögur geti veikt samkeppnisstöðu Íslands, dregið úr fjárfestingu og haft neikvæð áhrif á hagvöxt til lengri tíma. Það er því mikilvægt að ef stjórnvöld ætla ekki að falla frá áformunum verði skattahækkunin aðeins í gildi til skamms tíma og bundin af skýru sólarlagsákvæði.











%20(1920%20x%201080%20px).png)


