SFF gagnrýna skort á heildstæðu mati á áhrifum hækkunar bankaskatts

SFF gera alvarlegar athugasemdir við áhrifamat fjármála- og efnahagsráðuneytisins vegna fyrirhugaðrar hækkunar bankaskatts. Samtökin telja óljóst hversu miklum tekjum hækkunin muni í raun skila ríkissjóði þegar tekið hefur verið tillit til allra áhrifa hennar. Fjallað var um gagnrýni samtakanna í Morgunblaðinu fyrir helgi, þar sem rætt er við Heiðrúnu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra SFF.
Fyrirhugað er að hækka sértækan skatt úr 0,145% í 0,254% af heildarskuldum skattskyldra fjármálafyrirtækja umfram 50 milljarða króna. Ráðuneytið áætlar að hækkunin skili ríkissjóði um sex milljörðum króna árið 2027.
SFF hafa hins vegar bent á að um brúttótekjur sé að ræða. Ekki hafi verið lagt tölulegt mat á möguleg áhrif hækkunarinnar á aðrar skatttekjur, arðgreiðslur Landsbankans eða verðmæti eignarhlutar ríkisins í bankanum.
Óheppileg tímasetning
„Tímasetning þessarar skattahækkunar er sérstaklega óheppileg. Hagkerfið er að kólna, atvinnuleysi eykst með kostnaði fyrir ríkissjóð og hagvaxtarhorfur hafa versnað. Á sama tíma liggur ekki fyrir tölulegt mat á neikvæðum áhrifum hækkunarinnar á þjóðarbúið í heild. Það ætti að kalla á sérstaka varfærni við ákvarðanir um varanlega hækkun skatta. Það er ekki óeðlilegt að gera þær kröfur að stjórnvöld vandi afar vel til verka þegar gripið er inn með skattahækkunum,“ segir Heiðrún í samtali við Morgunblaðið.
Tímabundin hækkun verði ekki fallið frá áformunum
SFF telja skorta heildstætt tölulegt mat á ávinningi og kostnaði skattahækkunarinnar. Samtökin leggja áherslu á að verði ekki fallið frá henni ætti hún að vera tímabundin.
„Ef hækkunin er hugsuð til að mæta tímabundinni stöðu ríkisfjármála er eðlilegt að hún hafi skýran endapunkt. Verði ekki fallið frá hækkuninni er rétt að lögfesta sólarlagsákvæði, t.d. til tveggja ára, þannig að hækkunin myndi falla úr gildi sjálfkrafa. Það yrði til þess fallið að lágmarka neikvæð efnahagsáhrif af skattahækkuninni,“ sagði Heiðrún við Morgunblaðið.


.jpg)










%20(1920%20x%201080%20px).png)