Upptaka: Enn hærri skattar, fyrir hvern?

Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu stóðu að fundi um boðaða skattahækkun stjórnvalda á fyrirtæki í fjármálageiranum undir yfirskriftinni, „Enn hærri skattar, fyrir hvern?“. Fundurinn fór fram þriðjudaginn 9. júní í Veröld – húsi Vigdísar, kl. 13:00-14:30. Hér að neðan má finna upptöku frá fundinum.

Skattahækkun á fjármálafyrirtæki var boðuð í fjármálaáætlun fjármála- og efnahagsráðherra fyrir árin 2027 til 2031. Ekki hefur verið upplýst um eðli hennar eða umfang með tilheyrandi óvissu og ófyrirsjáanleika.

Á fundinum kynnti Dr. Gunnar Haraldsson, stofnandi Intellecon, niðurstöður skýrslu um rekstrar- og skattaumhverfi fjármálaþjónustu á Íslandi og velti upp mögulegum áhrifum af boðaðri skattahækkun.

Auk þess héldu Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka og Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Seðlabankans, erindi á fundinum.

Aðrir þátttakendur á fundinum voru:

Arna Lára Jónsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra og varaformaður Viðreisnar

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins

Hreiðar Bjarnason, framkvæmdastjóri fjármála hjá Landsbankanum

Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins

Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka iðnaðarins, forstjóri Hornsteins og fyrrverandi félags- og jafnréttismálaráðherra

Þórður Pálsson, forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá

Fundarstjóri verður Íris Björk Hreinsdóttir, yfirlögfræðingur SFF, sem einnig stýrði fyrri pallborðsumræðum á fundinum. Ingvar Haraldsson, greininga- og samskiptastjóri SFF, stýrði þeim seinni.