Dýrasti afsláttur ársins?

Nú þegar helstu netsöludagar ársins eru að ná hámarki er gott að staldra við og minna sig á að sum tilboð eru einfaldlega of góð til að vera sönn. Á svörtum föstudegi og stafrænum mánudegi er vissulega hægt að gera góð kaup. En það gætu einnig verið verstu kaup lífs þíns sem væru handan við hornið.
Netsvik verða sífellt fjölbreyttari, svikararnir útsmognari og aðferðir þeirra þróaðri. Með aukinni notkun á gervigreind getur verið erfiðara að átta sig á svikum. Með nokkrum einföldum varúðarráðstöfunum má draga úr hættunni á því að netsvikarar komist yfir þína fjármuni eða persónuupplýsingar.
Ekki láta undan tímapressunni
Svikarar eru góðir í að telja okkur trú um að við séum að missa af bestu kaupunum, við verðum að greiða tafarlaust því annars missum við af.
Með því að horfa á tilboðið með heilbrigðri tortryggni gætum við sparað okkur háar fjárhæðir og það mikla svekkelsi sem fylgir því að verða fyrir svikum.
Er tilboðið of gott til að vera satt?
Það er vissulega hægt að gera góð kaup á netdögum í aðdraganda aðventunnar. Það er þó ólíklegt að þú finnir Gucci tösku á 90% afslætti, fjórir fyrir einn af nýjasta snjallsímanum eða ferð fyrir tvo til New York í desember á örfáa þúsundkalla. Þegar tilboð eru svona fáránlega góð er ástæða til þess að staldra við og velta fyrir sér: er þetta of gott til þess að vera satt?
Farðu gætilega með kortaupplýsingar og pin-númer
Kortaupplýsingar, lykilorð og skilríki eru gulls ígildi fyrir netsvikara og geta jafnvel verið þeim enn verðmætara en ein stök millifærsla á netsvikasíðu. Það er því afar mikilvægt að fólk passi þessar upplýsingar eins og sjáaldur augna sinna. Það er góð venja að frysta kort sem ekki eru í daglegri notkun, það er hægt að gera með einni aðgerð í símanum, sem og affrysta aftur. Þá er alltaf góð hugmynd að nota fyrirframgreidd kort, t.d. þegar þú ert að versla á netinu eða ferðast erlendis.
Farðu sérstaklega gætilega með rafrænu skilríkin þín
Þegar kemur að rafrænum skilríkjum er mikilvægt að samþykkja ekki innskráningarbeiðnir sem þú kannast ekki við. Þannig gætir þú verið að hleypa svikurum inn í heimabankann þinn og gætir setið upp með mikið fjárhagslegt tjón.
Heilbrigð tortryggni
Gullna reglan þegar kemur að fjármálum er að temja sér heilbrigða tortryggni og það á sannarlega við um netverslun.
Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu standa í nóvember fyrir vitundarvakningu um netsvik og hafa tekið saman hollráð gegn netsvikum til að hjálpa almenningi að þekkja aðferðir svikara á heimasíðu sinni, SFF.is. Samtökin hafa einnig útbúið netsvikaprófið „Kemur þú auga á svikin?“, þar sem hægt er að spreyta sig á raunhæfum dæmum og kanna hversu auðvelt er að láta blekkjast.
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu þann 26. nóvember.



.jpg)










%20(1920%20x%201080%20px).png)