Beint streymi: SFF dagurinn 2026

SFF dagurinn árið 2026 fer fram í dag, 15. apríl frá kl. 14:00-16:00 í Arion banka, Borgartúni 19, undir yfirskriftinni Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin. Beint streymi má finna hér að neðan.
Hvernig getur fjármálaþjónusta áfram stutt við hagvöxt og bætt lífskjör næsta áratuginn? Hvaða tækifæri felast í þróun fjártækni og gervigreindar og hvernig geta Íslendingar nýtt þau sem best?
Fjallað verður um þessi málefni og fleiri, auk þess sem kynnt verður ný skýrsla, Íslensk fjártækni 2026 – Staða og tækifæri, sem unnin er af Northstack fyrir SFF og Íslandsstofu.
Fram koma:
- Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra
- Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra
- Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika
- Jón Guðni Ómarsson, formaður SFF og bankastjóri Íslandsbanka
- Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF
- Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka
- Guðmundur Hafsteinsson frumkvöðull
- Gunnlaugur Jónsson, stjórnarformaður Reykjavík Fintech
- Helga Valfells, meðeigandi og stofnandi Crowberry Capital
- Kristinn Árni Lár Hróbjartsson, stofnandi Northstack
- Kristín Gunnarsdóttir, forstöðumaður upplýsingamiðlunar Landsbankans
- Marinó Örn Tryggvason, stofnandi ARMA Advisory














.jpg)
