Bjartur og Vésteinn til SFF

Tveir nýir starfsmenn hafa hafið störf hjá Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF),þeir Bjartur Elíasson og Vésteinn Örn Pétursson. Bjartur starfar sem lögfræðingur hjá samtökunum, en Vésteinn í stöðu sérfræðings í samskiptum, auk þess sem hann sinnir lögfræðilegum verkefnum.

Bjartur kemur til SFF frá lögmannsstofunni BBA//Fjeldco, en hann hafði áður starfað hjá Lögfræðistofu Reykjavíkur og í lögfræðiteymi alþjóðlega netöryggisfyrirtækisins WithSecure. Bjartur er með meistarapróf í lögfræði frá Háskóla Íslands.

Vésteinn starfaði áður hjá fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, síðar fréttastofu Sýnar, og hafði gert frá árinu 2018 og sinnti þar fréttaflutningi á vef, í útvarpi og í sjónvarpi. Einnig starfaði hann sem ritstjóri Stúdentablaðsins í Háskóla Íslands veturinn 2024 til 2025. Vésteinn er með meistarapróf í lögfræði frá Háskóla Íslands.

Eftir ráðningu þeirra Bjarts og Vésteins eru starfsmenn samtakanna nú sjö talsins.