Evrópska fjármálavikan í fullum gangi

Evrópska fjármálavikan er nú í fullum gangi, en hún hófst mánudaginn 16. mars. Með vikunni er ætlunin að gera fjármálalæsi hátt undir höfði, með því að vekja fólk til umhugsunar um peninga og sín persónulegu fjármál.
Fjöldi viðburða sem tengjast fjármálalæsi hafa verið skipulagðir víðs vegar um Evrópu, bæði af landssamtökum fjármálafyrirtækja í hverju ríki fyrir sig og af evrópsku bankasamtökunum EBF.
Evrópska fjármálavikan er árlegt átak samhliða alþjóðlegri fjármálaviku OECD. Hún nær til ungs fólks í meira en 35 Evrópulöndum og spannar allt frá fjármálalæsiskennslu í skólum til fyrirlestra og ráðstefna, að ógleymdri Evrópukeppninni í fjármálalæsi, sem fer fram í maí.
Undankeppnin fer þó fram um þessar mundir, en íslensk ungmenni á unglingastigi í grunnskóla geta freistað þess að komast á lokamótið með þátttöku í Fjármálaleikunum, sem er fjármálalæsiskeppni milli grunnskóla landsins. Hér má lesa meira um Fjármálaleikana, en sigurskólinn fær að senda tvo fulltrúa til Brussel til að keppa í Evrópumótinu í fjármálalæsi, auk þess sem skólinn fær vegleg peningaverðlaun.
Á vef evrópsku bankasamtakanna má einnig finna frekari upplýsingar um vikuna, gagnlegt og skemmtilegt Kahoot-próf og fleira til.








.jpg)






%20(300%20x%20200%20px)%20(2).jpg)