Fjármálalæsi innleitt í skipstjórnar- og vélstjórnarnám

Nemendur í skipstjórn og vélstjórn við Tækniskólann eru nú í seinni stjórnunaráfanga námsins, þar sem fjármálalæsi verður kennt. Stuðst verður við bókina Snjöll skref í fjármálum eftir Gunnar Baldursson, sem nemendur fengu að gjöf frá Fjármálaviti.
Í frétt á vef Tækniskólans segir að Björgvin Steinsson, kennari áfangans, hafi fyrst heyrt af bókinni í útvarpsviðtali á Bylgjunni, þar sem rætt var við Heiðrúnu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra SFF, og Kristínu Lúðvíksdóttur, verkefnastjóra fjármálafræðslu. Bókin, sem fjallar um grunnatriði í fjármálum einstaklinga, hafi vakið áhuga Björgvins.
Björgvin setti sig í kjölfarið í samband við Fjármálavit, en úr varð að nemendur áfangans fengu bókina, sem nýtt verður við kennslu í vor, að gjöf. Haft er eftir Björgvin að fjármálalæsi sé mikilvægt fag fyrir alla, og sérlega góður undirbúningur fyrir skip- og vélstjórnarnemendur.
„Við erum að ljúka gæðastjórnun og mannauðsstjórnun, auk tímastjórnunar og verkefnastjórnunar, og munum í lokin fara yfir fjármálalæsi. Ég hef lengi haft áhuga á að kenna fjármál og fannst mikilvægt að nemendurnir hefðu góða kennslubók í höndunum,“ segir Björgvin, og nefnir meðal annars að grunnþekking á fjármálum er afar mikilvæg þegar nemendur stíga út á vinnumarkað.
Hann sé bjartsýnn á áframhaldandi kennslu í fjármálalæsi. Góður rammi sé fyrir slíka kennslu innan áfangans.
„Það er afar mikilvægt að hafa góðar bækur í höndunum þegar við erum að kenna fjármál,“ segir Björgvin að lokum.

.jpg)






%20(300%20x%20200%20px)%20(2).jpg)





