Fjártækni á Íslandi 2026 - viðburður 27. maí

SFF og Íslandsstofa bjóða til viðburðar í tilefni af útgáfu á nýrri skýrslu um fjártækni á Íslandi 2026 sem Íslandsstofa og SFF stóðu fyrir. Helstu niðurstöður úr kortlagningunni verða kynntar og við fáum sömuleiðis að heyra áhugaverð erindi frá aðilum úr geiranum.

Viðburðurinn fer fram miðvikudaginn 27. maí kl. 16:00, í Fantasíusal Kjarvalsstofu, Austurstræti 10a.

Framsögumenn á viðburðinum verða:

•    Eszter Czibor, Northstack
•    Ólöf Jónsdóttir, framkvæmdastjóri einstaklingssviðs Íslandsbanka
•    Garðar Karl Ólafsson, yfirmaður viðskiptaþróunar hjá Myntkaupum
•    Bergur Ebbi Benediktsson, meðstofnandi Spesíu

Við hlökkum til að sjá þig!

Viðburðurinn er öllum opinn en skráning er nauðsynleg hér.