Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin

SFF dagurinn árið 2026 fer fram miðvikudaginn 15. apríl frá kl. 14:00-16:00 í Arion banka, Borgartúni 19, undir yfirskriftinni Ísland 2036: Fjártækni­eyjan og framtíðin.

Hvernig getur fjármálaþjónusta áfram stutt við hagvöxt og bætt lífskjör næsta áratuginn? Hvaða tækifæri felast í þróun fjártækni og gervigreindar og hvernig geta Íslendingar nýtt þau sem best?

Fjallað verður um þessi málefni og fleiri, auk þess sem kynnt verður ný skýrsla, Íslensk fjártækni 2026 – Staða og tækifæri, sem unnin er af Northstack fyrir SFF og Íslandsstofu.

Fram koma:

  • Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra
  • Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra
  • Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika
  • Jón Guðni Ómarsson, formaður SFF og bankastjóri Íslandsbanka
  • Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF
  • Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka
  • Guðmundur Hafsteinsson frumkvöðull
  • Gunnlaugur Jónsson, stjórnarformaður Reykjavík Fintech
  • Helga Valfells, meðeigandi og stofnandi Crowberry Capital
  • Kristinn Árni Lár Hróbjartsson, stofnandi Northstack
  • Kristín Gunnarsdóttir, forstöðumaður upplýsingamiðlunar Landsbankans
  • Marinó Örn Tryggvason, stofnandi ARMA Advisory

Boðið verður upp á léttar veitingar að fundi loknum.

Fundurinn er opinn öllum en skráning er nauðsynleg hér að neðan.