SFF dagurinn 2026: Samantekt og upptaka

SFF dagurinn 2026 fór fram miðvikudaginn 15 .apríl frá kl. 14:00 til 16:00 í Arion banka, Borgartúni 19. Í ár var yfirskrift SFF dagsins Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin.

Hvernig getur fjármálaþjónusta áfram stutt við hagvöxt og bætt lífskjör næsta áratuginn? Hvaða tækifæri felast í þróun fjártækni og gervigreindar og hvernig geta Íslendingar nýtt þau sem best?

Fjallað var um þessi málefni og fleiri, auk þess sem kynnt var ný skýrsla, Íslensk fjártækni 2026 – Staða og tækifæri, sem unnin er af Northstack fyrir SFF og Íslandsstofu. Þá var hulunni svipt af nýrri könnun sem Gallup vann í mars, sem sýnir að traust til íslenskra fjármálafyrirtækja hefur aukist mjög meðal almennings á síðustu árum.

Dagskrá fundarins var svohljóðandi:

Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka og formaður SFF, hélt opnunarávarp og ræddi um tækifæri í fjártækni og gervigreind, auk þess sem hann minnti á mikilvægi þess að stjórnvöld mótuðu fyrirtækjum hagstætt starfsumhverfi. Þá væri boðuð hækkun skatta á fjármálafyrirtæki þvert á umræðuna í Evrópu.

Marinó Örn Tryggvason flutti erindið Geta skynsamlegar ákvarðanir verið óskynsamlegar? og fjallaði um helstu áskoranir sem íslenskt fjármálakerfi stendur frammi fyrir. Þá benti Marinó á mikilvægi fjármálakerfisins sem innviðar í samfélaginu, og lagði til leiðir til þess að styrkja kerfið í því tilliti.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ávarpaði fundinn og ræddi um hlutverk fjármálageirans í atvinnulífinu og nýja atvinnustefnu stjórnvalda.

• Pallborðsumræður – Kristín Gunnarsdóttir, forstöðumaður upplýsingamiðlunar Landsbankans ræddi við Daða Má Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Benedikt Gíslason, bankastjóra Arion banka. Þar var rætt um áskoranir í rekstri ríkisins og möguleikann á að draga úr vægi verðtryggingar í hagkerfinu, auk blýhúðunar og heimatilbúinna hindrana sem íslensk fjármálafyrirtæki búa við.

Kristinn Árni Lár Hróbjartsson, stofnandi Northstack, kynnti skýrsluna Íslensk fjártækni 2026 – Staða og tækifæri. Skýrsluna má nálgast hér.

Guðmundur Hafsteinsson frumvköðull flutti erindið Frá loforðum til veruleika, þar sem hann fjallaði um tækifæri atvinnulífsins til hagnýtingar gervigreindar, fór yfir hvernig störf munu taka breytingum til framtíðar og benti á tækifærin sem felast í mögulegri framleiðniaukningu fyrir lítið land eins og Ísland.

• Pallborðsumræður – Gunnlaugur Jónsson, stjórnarformaður Reykjavík Fintech, ræddi við Helgu Valfells, meðeiganda og stofnanda Crowberry Capital og Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika. Fjallað var um tækifæri og mögulegar ógnir sem felast í hraðri framþróun gervigreindar, fjártækni og skattlagningu á fjármálafyrirtæki.

Þar að auki kynnti Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF, niðurstöður kannana sem sneru að trausti, fjármálalæsi og viðhorfi stjórnenda fjármálafyrirtækja til notkunar og framtíðarmöguleika gervigreindar.

Upptöku af fundinum má nálgast hér að neðan – en glærur frá fundinum má finna hér til hliðar.