Umsagnir
Umsögn SFF um frumvarp til laga um varfærniskröfur til verðbréfafyrirtækja
SFF hafa ítrekað bent á að sköpum skipti fyrir samkeppnishæfni íslensks fjármálamarkaðar að ekki sé gengið lengra en þörf er á við innleiðingu evrópsks regluverks á fjármálamarkaði. Vísað var til ábendinga sem SFF skiluðu til starfshóps gegn gullhúðun (blýhúðun) EES-reglna og sérstök athygli vakin á ábendingum um að hér á landi gildi strangari reglur um breytileg laun (kaupauka) en í helstu samanburðarlöndum okkar.
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um hluta- og einkahlutafélög
SFF, SA og fleiri hagsmunasamtök minntu á mikilvægi laga um hluta- og einkahlutafélög, enda grundvallar löggjöfin starfsemi þeirra félagaforma sem langstærstur hluti íslensks atvinnulífs reiðir sig á. Máli skiptir að ítarlegt samráð fari fram þegar gera á breytingar á slíkri grundvallarlöggjöf. Ítrekaðar voru ábendingar til stjórnvalda um að við innleiðingu regluverks ESB skuli ekki fara fram úr lágmarkskröfum Evrópureglna, gildissvið íslenskra reglna verði ekki víðtækara en þeirra evrópsku og að nýta skuli allar ívilnandi undanþágur.
Umsögn um þátttöku Íslands í samstarfsáætlunum ESB 2028–2034
Fulltrúar atvinnulífsins telja að til mikils sé að vinna við eflingu samráðs stjórnvalda og hagaðila þegar kemur að stefnumörkun í þátttöku Íslands í samstarfsáætlunum Evrópusambandsins. Vandað og fyrirsjáanlegt ferli er lykilforsenda þess að íslenskir hagsmunir séu tryggðir.
Umsögn SFF um drög að frumvarpi til laga til breytinga á lögum um ökutækjatryggingar
Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu hafa skilað umsögn um drög að frumvarpi til breytinga á lögum um ökutækjatryggingar í gegnum Samráðsgátt stjórnvalda. Markmiðið með lagabreytingunni er einkum að innleiða tilskipun (ESB) 2021/2118 (hér eftir „tilskipunin“) í landsrétt.
Sameiginleg umsögn um drög að frumvarpi til breytinga á lögum um hlutafélög og einkahlutafélög
Sameiginlegri umsögn Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu og annarra hagsmunasamtaka um drög að frumvarpi til breytinga á lögum um hluta- og einkahlutafélög hefur verið skilað í gegnum Samráðsgátt stjórnvalda. Samtökin hafa lagt áherslu á að blýhúðun verði afnumin úr löggjöf og að stjórnvöld hafi tiltekin sjónarmið að leiðarljósi við innleiðingu á regluverki ESB. Á meðal þeirra sjónarmiða sem samtökin minna á eru: Gildissvið íslenskra reglna skal ekki verða víðtækara en þeirra evrópsku reglna sem innleiddar eru, afnema skal sambærilegar kröfur sem fyrir eru í löggjöf, ekki skal fara fram úr lágmarkskröfum evrópskra reglna og að nýta skuli allar ívilnandi undanþágur sem völ er á.
Það er til mikils að vinna að innleiðing frá T+2 yfir í T+1 gangi hnökralaust fyrir sig hérlendis
Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu skiluðu umsögn um drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafrænna eignaskráningu fjármálagerninga eða CSDR Refit og T+1. SFF ítreka að leggja skuli áherslu á vandaða innleiðingu evrópsks regluverks og telja öflugt og tímanlegt samráð stjórnvalda um lagafrumvörp mikilvægt og jákvætt. SFF fagna þeim sjónarmiðum sem fram hafa komið við vinnslu málsins um að breytingarnar krefjist tímanlegs undirbúnings og samhæfingar þvert á markaðinn. SFF hvetja til þess að aðkoma haghafa í innleiðingarvinnunni verði sem fyrst. Það er til mikils að vinna að innleiðing frá T+1 yfir í T+2 gangi hnökralaust fyrir sig hérlendis.
Umsögn um frumvarp til laga um réttindavernd fatlaðs fólks
Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu hafa skilað umsögn um frumvarp til laga um réttindavernd fatlaðs fólks. Samtökin fagna jákvæðum markmiðum fyrirhugaðrar lagasetningar um að tryggja fötluðu fólki raunveruleg yfirráð yfir fjármálum sínum en telja þó nauðsynlegt að benda á að frumvarpsdrögin þarfnast breytinga svo tilætluðum markmiðum verði náð.